Skilmálar

G.ó. gull ehf./ Gullsmiðja Óla

Kt: 590609-0130

Skilmálar 

KT: 590609-0130 

Hamraborg 5 

200 Kópavogi 

S: 5643248 

 

  1. Almennt

Skilmálar þessir gilda um sölu á vöru og þjónustu frá G.ó. gull ehf til neytenda.Skilmálarnir eru staðfestir samhliða kaupum og skilgreina réttindi og skyldur seljanda og kaupanda.Allir samningar teljast gerðir á á íslensku og um þá gilda íslensk lög.Með því að staðfesta pöntun í netverslun, samþykkir kaupandi að hafa kynnt sér og gengist undir þessa skilmála.Um neytendakaup gilda lög um neytendakaup nr./48/2003 og lög um neytendasamninga nr.16/2016. 

 

  1. Skilaréttur og skipti.

Hægt er að skipta vörum eða fá inneignarnótu, innan 14 daga frá kaupum okkar í verslun okkar Gullsmiðju Óla, með því skilyrði að varan ásamt umbúðum séu ónotuð/heil.Vörur sem keyptar eru í versluninni fást ekki endurgreiddar. 

Um kaup á vörum í netverslun, gildir lögboðinn réttur kaupanda á að falla frá kaupum og fá vöruna endurgreidda að fullu, sbr. lög nr.16/2016 um neytendasamninga og reglugerð um neytendavernd í fjarsölu nr.0435/2016. Fresturinn til að falla frá kaupum,eru 14 dagar fráþeim degi sem kaupandi, eða viðtakandi pöntunarinnar, fær vöruna afhenta frá flutningsaðila.Til þess að nýta sér réttinn til að falla frá samningi, ber neytandi ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferðhennar, annarrar en þeirra sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar, sbr.4. mgr. laga nr. 16/2016.eyðublað_.docx 

 

Ef fallið er frá samningi vegna kaupa í netverslun endurgreiðir G.ó. gull ehf allar greiðslur sem fengist hafa frá kaupanda, þar með talinn sendingarkostnaðinn sem greiddur var við pöntun.Endurgreiðsla fer fram eigi síður en 14 dögum eftir að tilkynningin berst frá kaupanda, en við áskyljum okkur rétt til að bíða með endurgreiðsluna þar til varan er komin til okkar, eða kaupandi hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar.Endurgreiðsla er framkvæmd með sama greiðslumiðli og notaður var við upphaflegu kaupin. 

 

Undantekningar frá skilarétt: Í samræmi við ákvæði laga um neytendasamninga, fellur skilaréttur í verslun og réttur til endurgreiðslu á kaupum í netverslun niður, þegar um er að ræða: Vörur sem framleiddar eru samkvæmt sérstökum óskum og forskrift kaupanda, og vörur sem hafa verið sérsniðnar eða áletraðar sérstaklega að ósk kaupanda, og stærðarbreytinga, greiðir kaupandi sendingarkostnaðinn. 

 

  1. Upplýsingar um vörur og verð.

 Pöntun í netverslun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda, sem á sér stað þegar kaupandi steðfestir pöntun í greiðslugátt.Seljandi er sömuleiðis bundin til að afgreiða pöntunina, svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu.Kaupandi fær senda staðfestingu á pöntun í tölvupósti og er hvattur til að yfirfara hana vandlega til að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.G.ó gull ehf áskilur sér fullan rétt til að afturkalla pantanir, ef rökstuddur grunur vaknar um svik eða misnotkun. 

 

Vöruúrvalið getur verið mikið milli netverslunar og verslunarinnar, Gullsmiðja Óla. Ef varan reynist uppseld, áskylur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni í heild eða að hluta.Ef til þess kemur verður kaupanda boðin önnur sambærileg vara, full endurgreiðsla, eða möguleiki á að láta smíða viðkomandi skartgrið ef hann er hluti af vöruúrvali Gullsmiðju Óla og ef aðstæður leyfa. 

 

Öll verð sem birtast í netversluninni og í versluninni Gullsmiðja Óla eru gefin upp í Íslenkum krónum og innihalda 24% Íslenskan virðisaukaskatt (vsk). Um verðmekingar fer samkvæmt reglum nr.536/2011. G.ó gull ehf/ Gullsmiðja Óla áskilur sér rétt til fyrirvaralausra verðbreytinga og til að taka vörur úr sölu án fyrirvara. 

 

Við birtum allar upplýsingar með fyrirvara um augljós birtingr og innsláttar eða kerfismistök, t.d. ef verð skráist augljóslega rangt vegna tæknilegra galla.Í slíkum tilfellum áskilur G.ó. gull ehf/ Gullsmiðja Óla sér fullum rétt til að leiðrétta pöntunina í samræmi við rétt verð, eða rifta kaupum í heild sinni, Þar sem kaupanda hafi mátt vera ljóst að um augljósa villu var að ræða. 

 

  1. Greiðsla.

 Í netverslun G.ó. gull ehf er tekið á móti greiðslum frá helstu kredit og debetkortum í gegnum örugga greiðslugátt Straum 

 

5.Sendingar, afhendingartími og tollar. 

 Innanlands: Þegar vara er pöntuð í netverslun er hægt að velja á milli þess að fá vöruna senda með Íslandspósti eða Dropp.Einnig er hægt að sækja pöntun í verslunina Gullsmiðja Óla, Hamraborg 5, 200 Kópavogi. Eftir að sendingaraðilar hafa móttekið vörurnar, er G.ó. gull ehf ekki lengur ábyrgur ef vara glatast, eða skilar sér ekki. 

 

6.Ábyrgðarskilmálar og gallar. 

 Ef vara reynist gölluð býður G.ó. gull ehf/Gullsmiðja Óla viðskiptavini nýja vöru í staðinn, eða endurgreiðslu, ef viðskiptavinurinn óskar þess frekar. G.ó. gull ehf greiðir allan sendingarkostnaðsem hlýst af skiptunum. Vinsamlegast sendið til okkar tölvupóst á netfangið gull@gull.is með uppl. um galla vörunnar. Tilkynningafrestur vegna galla er almennt tvö ár en lengur ef vörunni er ´tlað að endast lengur, sbr.mgr.27.gr.laga um neytendakaup. 

 

Framvísa skal sölukvittun sem fylgir vörunni, þegar komið er með vöru til viðgerðar.Ábyrgðin tekur aðeins til framleiðslugalla sem sannarlega koma fram á vörunni á ábyrgðartímanum.Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á vöru eins og t.d. rispur eða öðrum óhöppum sem leiða til skemmda á vörunni. Að öðru leyti, vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016. 

 

Um ábyrgð vara frá G.ó. gull ehf/ Gullsmiðju Óla fer samkvæmt ákvæðum nr. 48/2003, um neytendakaup, í tilviki neytendakaupa. 

Samkvæmt 7.gr.laganna telst söluhlutur afhentur, þegar neytandi hefur veitt honum viðtöku, og áhætta af hlutnum flyst yfir til neytanda þegar söluhlutur hefur verið afhentur, sbr.1.mgr.14.gr.laganna. 

 

Yfirferð á vörum og eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna kaupanda innan eðlilegra tímamarka, áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. 

 

  1. Úrlausn vafamála.

 Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt.Vilji neytandi koma kvörtun á framfæri við seljanda, skal hafa samband í tölvupósti gull@gull.is 

Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa | Ísland.is