Þinn gullsmiður í 30 ár

Gullsmiðja Óla var stofnuð þann 19. júní 1993. 

Þjónusta

Viðgerðir

Gullsmiðja Óla tekur að sér allar viðgerðir en Óli hefur sérhæft sig í viðgerðum á skartgripum og korphúsvörum þar sem hann er útlærður á sérhæfðu viðgerðarverkstæði. við höfum mikið tekið að okkur að laga viðkvæma erfðagripi bæði frá einstaklingum og söfnum. Einnig tökum við að okkur hreinsun á skartgripum og korphúsvörum

Sérsmíði

Við sérsmíðum eftir óskum viðskiptavina. Hægt er að koma með gamla muni í bræðslu og við smíðum nýan skartgrip úr þeim gamla, þannig er hægt að gefa gömlu skarti nýtt notagildi. Viðskiptavinur getur komið með eigin hugmyndir/hönnun af skartgrip, en við veitum einnig aðstoð við þá hugmyndarvinnu.

Handsmíði

Það sem einkennir okkar framleiðslu er að allar vörur sem framleiddar eru á okkar verkstæði eru handsmíðaðar og þess vegna er hver og einn gripur einstakur.

Áletrun

Tökum að okkur áletranir á alla málma hvort sem það er skartpripir, úr, hnífar, skotvopn, verkfæri, pennar, vasapelar, og svo lengi mætti telja. Óli grefur einnig á gler og kristal en hann er þekktur fyrir áletrun á brúðarglös.

Persónuleg áletrun

Hægt er að koma með eiginhandaráritun og Óli færir það yfir á hlutinn sem grafa á í.
Öll áletrun er handgerð.

Giftingahringar

Allir giftingarhringar hjá okkur eru sérsmíðaðir fyrir hvern og einn. Gerum verðtilboð á staðnum í samráði við viðskiptavininn. Hægt er að sá sýnishorn af hringum í verslun okkar. Persónuleg þjónusta þar sem þið fáið nákvæmlega þá hringa sem þið óskið eftir.

Fyrirspurn

Dragðu skrár hingað eða
Samþykktar skrár: jpg, png, Hámarksstærð skráar: 1 MB.